Slóttugar hugrenningar piparjúnku
Mánudagur, 19. mars 2007
"It requires a very unusual mind to undertake the analysis of the obvious."
A. N. Whitehead
Ég móttek í sífellu hálfgerð hótunarbréf frá honum Christian Carter. Hann heldur úti vefsíðu um þá klæki sem konum er nauðsynlegt að ástunda, ætli þær nokkru sinni að krækja í karlmann og uppskera sokkaþvott á sunnudagskvöldum að launum.
Ég er svolítið hrædd við þennan mann, en þó ekki nánda nærri því eins skelkuð og þegar ég les subject línurnar hans í pósthólfinu mínu.
"How women scare their soulmate away" stóð í bréfi frá honum sem ég móttók í síðustu viku. Lömuð af ótta við að glata væntanlegum lífsförunaut lokaði ég samstundis augunum, bar fram einlæga ósk í hljóði og opnaði svo dýrðina.
"If you have finally met Mr. Right, would he end up falling in love with you and want to STAY?"
Ég geri samstundis ráð fyrir því.
"Or would he leave once he got close to you?" heldur Christian Carter áfram.
Kalt vatn milli skinns og hörunds. Af hverju hefur spurningin aldrei hvarflað að mér?
"If you arent 100% certain about how you´ll make the right man feel when he comes in to your life ..." staðhæfir Christian mjúkmáll "or you´ve allready had the right man come into your life and then leave, then you need to read this special letter I´ve written for you right now:"
Undir þessum orðum er slóð á vefsíðu, sem væntanlega inniheldur umrætt bréf sem Christian hefur í fullri einlægni eflaust skrifað til mín. Ég þori ekki að opna bréfið. Hvað stendur í því? Bíða mín kynni við einhvern ofurfola sem veður í konum af öllum gerðum? Mun honum leiðast einlægt atferli mitt þegar á hólminn er komið? Er mér nauðsynlegt að beita klækjum til að öðlast þann eftirsótta rétt að mega gera honum ýsu í soðið á sunnudögum?
Ringluð á svip loka ég bréfinu og ákveð að geyma þessar hugleiðingar að sinni. Fletti áfram gegnum subject línur og rek augun í stjörnuspánna mína.
"Picses: Do whatever is required of you" staðhæfir setning dagsins.
Fate has spoken. Ekki einungis fyllist ég staðfestu, heldur ákveð ég að kryfja málið til mergjar. Halla mér aftur í stólnum og lygni kvenlega aftur augunum, svona eins og til að æfa mig í kynþokka. Ég ætla að hegða mér eins og sönn kona. Umyrðalaust ætla ég að ljúga að karlmanni sem mér þykir álitlegur og fyrir alla muni, alls ekki sýna mig utandyra án þess að hafa áður sett á mig farða.
Mér þykir deginum ljósara að ég muni eiga við ramman reip að draga.
Undanfarna daga hef ég því flett upp hinum margvíslegustu leitarorðum er geta átt við hegðunaratferli það er herra Carter vitnar viðstöðulaust í. Og viti menn, Á Vísindavefnum er nefnilega að finna grein um keimlíka hegðun og þá sem Christian segir ofurfolum heimsbyggðarinnar eðlislægt að ástunda.
Þar kryfur hún Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsfræði, kynhegðun væntanlegs elskhuga míns til mergjar og flettir ofan af þeirri staðreynd að sennilega er karlmaður drauma minna að takast á við jaðarpersónuleikaröskun.
Væntanlegur draumaprins veður því ekki einungis í konum, heldur er án alls efa óstöðugur; á erfitt með að sýna tryggð og heilindi og forðast því náin kynni eins og heitan eldinn. Hann skiptir stöðugt um vini og vinkonur og því þarf ég á öllum mínum klókindum að halda, eigi ég að ná í skottið á honum um helgar.
Sjúkkit, maður að ég skuli hafa hlustað á stjörnuspánna.
Meginflokkur: Lífstíll | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:51 | Facebook
Athugasemdir
Jenný Anna Baldursdóttir, 19.3.2007 kl. 14:29
Já, ég fæ líka bréf frá þessum C. Carter næstum daglega, algjörlega óþolandi. Fyrst hélt ég að hann hefði kannski eitthvað til síns máls en nú hef ég séð í gegnum þetta hjá honum, þetta er ekkert annað heldur en greinar sem brjóta konur niður!! Af hverju tekur sig enginn til og skrifar greinar um það hvernig karlar eiga að hegða sér til þess að hrekja ekki draumaprinsessuna í burt? Svar; því þeir eru ekki ginnkeyptir fyrir svona rugli! Og hana nú. ;)
Ragga
Ragga (IP-tala skráð) 20.3.2007 kl. 00:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.